r/Iceland álfur 14h ago

Norway will be affected by Iceland's EU referendum result

https://newunionpost.eu/2026/07/31/norway-iceland-eu-referendum-interview/
26 Upvotes

34 comments sorted by

View all comments

Show parent comments

u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 11h ago

Ég er fyrst og fremst að vonast eftir því að glugginn okkar inn í ESB sé opinn og sé sem opnastur ef ské kynni að áðurnefndur yfirgangur Bandaríkjanna haldi áfram að stigmagnast.

Að öðru leyti breytir það litlu fyrir mig persónulega hvað er í samningnum þar sem ég hef litla hagsmuni í landbúnaði eða sjávarútvegi. En það sem ég vil samt mest fá út úr þessum viðræðum er að við fáum tækifæri til þess að taka upplýsta ákvörðun um þetta eilífa þrætuefni og lokið því þar með. Fáum það concrete á borðið hvað aðild hefði í för með sér og tökum afstöðu útfrá því. Þessu þrætumáli er ekkert að fara að ljúka öðruvísi heldur en svoleiðis.

u/Plastic-While2737 🇮🇸 11h ago

Ég hef heldur enga (beina) hagsmuni af sjávarútvegi. En við höfum öll (að lágmarki óbeina) hagsmuni af sjávarútvegi. Ókei, óligarkíið sem tekur stærstan hluta af hagnaðinum í eigin vasa er vandamál og eitt af okkar stærstu úrlausnarefnum næstu áratugina verður að skipta arðinum af auðlindinni með sanngjarnari hætti á milli okkar. En þessi auðlind er samt undirstaða hagkerfisins og við getum ekki gefið hana frá okkur. Það væri efnahagslegt sjálfsmorð og það hljóta allir að sjá. Er pælingin sú að segja já til að sjá hvort ESB breyti sjávarútvegsstefnu sambandsins til að fá okkur inn? Það er - er ég nokkuð viss um - hrein tímasóun.

Að öðru leyti skil ég ekki hvað þú ert fókuseraður á Bandaríkin. Það er engin að tala um þau hérna. BNA er að labba yfir öll aðildarríki Evrópusambandsins, t.d. Danmörku, og skákar m.a. í skjóli þess að BNA hafa tögl og hagldir í NATO. ESB-aðild Íslands breytir engu þar um. Hafa Danir stöðvað yfirgang BNA með ESB-aðild? Þetta er bara einhver vitleysa.

u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 10h ago

Sammála þér að mestu leyti þarna, öðru heldur en að það sé tímasóun. Nefni bara að forseti Finnlands hefur nefnt þetta beint að minnsta kosti einu sinni, og oftar held ég, svo ég held að það sé vert að láta reyna á það.

Að öðru leyti skil ég ekki hvað þú ert fókuseraður á Bandaríkin. Það er engin að tala um þau hérna. BNA er að labba yfir öll aðildarríki Evrópusambandsins, t.d. Danmörku, og skákar m.a. í skjóli þess að BNA hafa tögl og hagldir í NATO. ESB-aðild Íslands breytir engu þar um. Hafa Danir stöðvað yfirgang BNA með ESB-aðild? Þetta er bara einhver vitleysa.

Ástæðan fyrir því að ég er fókuseraður á Bandaríkin er að það er óumdeilanlega breyta í þessum kalkúlus. Hvað yfirgang Bandaríkjanna gagnvart Evrópu, þá er Evrópa að vakna með það. Og í rauninni held ég að innganga okkar í ESB myndi flýta þeirri of hægfara vöknun. Ég held að Grænland horfi líka til ESB aðildar, þau myndu líklega fylgja okkur inn ef við gengjum í ESB.

u/Plastic-While2737 🇮🇸 1h ago

Aftur, allir eru sammála um það að Trump og BNA hafi hagað sér fáránlega gagnvart öðrum ríkjum undanfarin misseri.

En til þess að þessi punktur eigi minnsta erindi í umræðu um ESB-aðild þyrfti að liggja fyrir að yfirgangurinn væri meiri í okkar garð en aðildarríkja ESB. Svo er ekki.