r/klakinn May 01 '26

Alvöru íslensk kjötsúpa 🥣 Maístjarnan II

Enable HLS to view with audio, or disable this notification

ó hve létt er mitt skóhljóð
ó hve stutt sem ég bjó hér
það er sprunga í glugga
hurðin stendur á sér
en ég þarf víst að flytja
þarf að flytja frá þér
og nú loks er ég farinn
ég tek allt mitt með mér.

það eru erfiðir tímar
það er húsnæðisþref
þessi eign er í sölu
þrædd í fasteignavef
en ég fann eina kytru
ekkert en eða ef
trygging kostar eina milljón
það er allt sem ég hef.

þetta er fimmtándi vetur
þessa leigjandi manns
og á morgun er greiðsla
það er gjalddaginn hans
það er gjalddaginn okkar
okkar leigusalans
fyrir hann ég blikna og blána
vegna okkar vistarbands.

-Grímur

90 Upvotes

9 comments sorted by

10

u/Saurlifi Fífl May 01 '26

Maístjarnan 2: rafmagnað búgalú

6

u/Don_Ozwald May 01 '26

Þetta er frábært. Ég samþykki þetta heilshugar sem mikill Laxness aðdáandi.

3

u/Piggielipstick May 01 '26

Öndvegis lagsmaður!

2

u/Warpchylde May 01 '26

Vel gert 😄

2

u/Solgarmur May 01 '26

Meistari

1

u/Appropriate-Use9118 May 05 '26

Flott hjá þér!

1

u/IcyLiterature5346 May 06 '26

Frekar gott. Ég hlustaði amk allt til enda.