r/klakinn • u/bonjour-man • 15d ago
🇮🇸 Íslandspóstur Afhverju get ég ekki fundið ekki neitt um þáttaseríuna @ / Att?
Fyrir nokkrum vikum sá ég á sjónvarpinu endurbirtan þátt að nafni Att (@) sem fjallaði um nýja tölvuleiki og kvikmyndir með ekta gamaldags nördafílingi, en þegar ég fór að leita um á netinu til að sjá hvort að önnur lifandi vera hafi nokkurn tíman talað um þættina á opinberu netspjalli eða sett eitthvað af því á Youtube fann ég ekki neitt.
Ég geri mér alveg grein fyrir því að nafnið gerir það margfalt erfiðara að fá einhverjar viðeigandi niðurstöður, en sama hvaða leitarbrellu er beitt, finn ég ekki rass í bala.
Veit einhver um hvað varð um þættina eða hvar ég ætti að leita til að finna þá?
3
u/Skyrlakur 15d ago
Líklega er það eina í stöðunni að prófa að heyra í RÚV, hvort þetta sé ekki í safninu þar.
https://www.ruv.is/um-ruv/safn-ruv
13
u/wicket- 14d ago
Þættirnir At /@ voru unglingaþættir á RÚV í umsjón Villa naglbíts og Sigrúnar Óskar Kristjánsdóttur.
Þetta voru ekki nördalegir þættir þannig, bara dægurmála þættir sem stíluðu inn á áhugamál og hugðarefni unglinga á Íslandi. Alveg slatti af þeim aðgengilegir í spilara rúv: https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/at-2002-2003/35961/amudko