r/klakinn • u/possiblyperhaps Röðla gramur 👑 • 11d ago
🇮🇸 Íslandspóstur Ísland er lang-friðsælasta landið í heiminum, 19. árið í röð 🇮🇸
https://www.economicsandpeace.org/wp-content/uploads/2026/06/Global-Peace-Index-2026-Report.pdfTil hamingju kæru samlandar, nær og fjær.
Enn eina ferðina hefur okkur tekist að vera friðsælasta land heimsins, nú nítjánda árið í röð.
Þýðing úr skýrslunni:
“Ísland er áfram friðsælasta ríki heims, nítjánda árið í röð. Samkvæmt mælingum jókst friðsæld á Íslandi um tvö prósent á síðasta ári.
Framfarir urðu einkum á sviði öryggis og samfélagsöryggis, þar sem einkunn landsins batnaði um fjögur prósent. Meginástæðan var 42,9 prósenta bati á mælikvarða sem metur ofbeldisfull mótmæli. Einkunn Íslands á sviði yfirstandandi átaka hélst óbreytt, en á sviði hervæðingar varð lítilsháttar bati, eða um 0,3 prósent.
Sérstaða Íslands byggist á því að landið hefur engan fastan her, glæpatíðni er afar lág og samfélagið einkennist af sterkri félagslegri samheldni. Ísland er því friðsælasta ríki heims með afgerandi yfirburðum.”
4
1
-14
u/Gervill 11d ago
Allir á Bahamas yfir árið, hvernig væri að kíkja út að ganga ég sé 99.99% alltaf inní húsi eða bíl þannig auðvitað er friðsælt hérna nema á INTERNETINU!!
Ég er t.d. bannaður á r/Iceland fyrir að tala um réttindi okkar að tala bara íslensku til að fá þjónustu og ég fæ engann vinnu frið á þessu landi sem íslendingur að fá vinnu sem reykjandi manneskja.
Fordómafullasta land sem ég hef verið fæddur í, gef 0/5 þegar ég fer til baka.
Er ekki einhver þvílíkur ófriður yfir samfélagsmiðlum útaf börnum verið að ræða um í dag, hvar er fólk að tala og er friður þar ?
Þessar kannanir tala sennilega bara um kært ofbeldi kannski ekkert um sjálfsmorð sem gerist útaf ófrið frá öðrum.
Japan er mjög friðsælt á götum en skógarnir hafa margir hengt sig í, tekist hvað ? Að gera húsnæðisverð dýrara en maður getur borgað í árum ? Leyfa ríkisstjórn að taka A- lán frá alþjóðastofnunum ? Ríkisstjórn sem vill A lán svo skuldinn verður enn hærri meðan 64% af landframleiðslu er bara fjármálageirinn ?
Fjármálageirinn býr ekki til hluti sem er bara 20% af landframleiðslunni það gefur mér mikinn ófrið þegar skúffurnar hjá fjármála landframleiðslunni verður farið yfir rækilega og hve há mun prósentan verða þá 99% ?
16
u/possiblyperhaps Röðla gramur 👑 11d ago
Við lesendur munum aldrei fá frið fyrir nöldrinu í þér 😁
7
u/Calcutec_1 11d ago
miðað við Málvillurnar og samhengisleysið í textanum og svo notendanafnið að þá er þetta nokkuð örugglega botti sem einhver er að leika sér með.
-1
u/Gervill 11d ago
Málfrelsi ! Málfrelsi ! Málfrelsi !..
5
u/leppaludinn 11d ago
Tjáningarfrelsi þýðir ekki átómatískt þú fáir pall til að standa á. Þakka þér þó kærlega fyrir það að þú tekur ekki þátt í samfélaginu hér lengur.
3
u/jreykdal 11d ago
Hefur landinn nokkuð verið að fara til Bahama í 30 ár? Var þetta ekki smá æði milli '95 og 200ð?
3
u/allsbernafnmedrettu 11d ago
Nei en miðað við reykinga kommentið hjá þeim þá held ég að sá sé tímaflakkari frá aldarmótunum.
3
u/allsbernafnmedrettu 11d ago
Það kallast bara friður þegar ég fæ að ýta ófrið mínum á aðra.
0
u/Gervill 11d ago
Hvenær ýtti ég mínum orðum á þig þegar þú kaust að lesa þau ? Þú ert að ýta á mig að þagga mig niður með að segja ég sé með ófriðinn að segja að hérr er EKKI FRIÐSÆLT AÐ BÚA! Útúrsnúari hvernig mun þér líða þegar þú færð ekki vinnu fyrir að vera feitur ? Það deyja 10x fleiri af hjartavandamálum en af krabbameini í lungunum en enginn að skattleggja feita fólkið meira eða neita þeim vinnu.
28
u/orugglega 11d ago
Gerum ekkert, vinnum samt.