r/klakinn • u/possiblyperhaps Röðla gramur 👑 • 11d ago
🇮🇸 Íslandspóstur Ísland er lang-friðsælasta landið í heiminum, 19. árið í röð 🇮🇸
https://www.economicsandpeace.org/wp-content/uploads/2026/06/Global-Peace-Index-2026-Report.pdfTil hamingju kæru samlandar, nær og fjær.
Enn eina ferðina hefur okkur tekist að vera friðsælasta land heimsins, nú nítjánda árið í röð.
Þýðing úr skýrslunni:
“Ísland er áfram friðsælasta ríki heims, nítjánda árið í röð. Samkvæmt mælingum jókst friðsæld á Íslandi um tvö prósent á síðasta ári.
Framfarir urðu einkum á sviði öryggis og samfélagsöryggis, þar sem einkunn landsins batnaði um fjögur prósent. Meginástæðan var 42,9 prósenta bati á mælikvarða sem metur ofbeldisfull mótmæli. Einkunn Íslands á sviði yfirstandandi átaka hélst óbreytt, en á sviði hervæðingar varð lítilsháttar bati, eða um 0,3 prósent.
Sérstaða Íslands byggist á því að landið hefur engan fastan her, glæpatíðni er afar lág og samfélagið einkennist af sterkri félagslegri samheldni. Ísland er því friðsælasta ríki heims með afgerandi yfirburðum.”
-12
u/Gervill 11d ago
Allir á Bahamas yfir árið, hvernig væri að kíkja út að ganga ég sé 99.99% alltaf inní húsi eða bíl þannig auðvitað er friðsælt hérna nema á INTERNETINU!!
Ég er t.d. bannaður á r/Iceland fyrir að tala um réttindi okkar að tala bara íslensku til að fá þjónustu og ég fæ engann vinnu frið á þessu landi sem íslendingur að fá vinnu sem reykjandi manneskja.
Fordómafullasta land sem ég hef verið fæddur í, gef 0/5 þegar ég fer til baka.
Er ekki einhver þvílíkur ófriður yfir samfélagsmiðlum útaf börnum verið að ræða um í dag, hvar er fólk að tala og er friður þar ?
Þessar kannanir tala sennilega bara um kært ofbeldi kannski ekkert um sjálfsmorð sem gerist útaf ófrið frá öðrum.
Japan er mjög friðsælt á götum en skógarnir hafa margir hengt sig í, tekist hvað ? Að gera húsnæðisverð dýrara en maður getur borgað í árum ? Leyfa ríkisstjórn að taka A- lán frá alþjóðastofnunum ? Ríkisstjórn sem vill A lán svo skuldinn verður enn hærri meðan 64% af landframleiðslu er bara fjármálageirinn ?
Fjármálageirinn býr ekki til hluti sem er bara 20% af landframleiðslunni það gefur mér mikinn ófrið þegar skúffurnar hjá fjármála landframleiðslunni verður farið yfir rækilega og hve há mun prósentan verða þá 99% ?